Betri samgöngur héldu upplýsingafund í Háskólanum í Reykjavík í vikunni vegna framkvæmda við Borgarlínu við Nauthólsveg. Farið var yfir stöðu framkvæmdanna, næstu áfanga og hvernig aðgengi að svæðinu verður háttað á framkvæmdatímanum. Fundurinn er liður í reglulegri upplýsingagjöf til þeirra sem starfa og stunda nám á svæðinu og skapa vettvang fyrir samtal um áhrif framkvæmdanna.

Framkvæmdirnar fela í sér verulegar breytingar á Nauthólsvegi og umhverfi hans. Komið verður fyrir sérrými fyrir almenningssamgöngur á Nauthólsvegi og ný Borgarlínustöð verður vestan við HR. Gatnamót Nauthólsvegar og Menntavegar verða ljósastýrð og ný aðkoma verður að Háskólanum í Reykjavík og Landhelgisgæslunni. Samhliða framkvæmdunum verða gerðir samfelldir göngu- og hjólastígar og lagnir og lýsing endurnýjuð.

Ásýndarmynd af Nauthólsvegi eftir framkvæmdir.

Ásýndarmynd af nýrri Borgarlínustoppustöð við HR.
Samtal um bráðabirgðastæði
Framkvæmdunum er skipt í sjö áfanga og hafa óhjákvæmilega áhrif á fjölda bílastæða við Háskólann í Reykjavík. Samkvæmt áfangaskiptingu verða 932 stæði í notkun í upphafi framkvæmdanna en þeim fækkar eftir því sem verkinu vindur fram og verða fæst 714 í síðari áföngum. Verktakar áætla að þegar bílstæðin verði fæst muni það hafa lítil áhrif á nemendur því unnið verður yfir sumartímann.
Samtal er í gangi milli HR og Reykjavíkurborgar um möguleika á að útbúa bráðabirgðastæði á meðan framkvæmdir standa yfir. Ef þau verða tekin í gagnið, mun bílastæðum fækka lítið sem ekkert. Markmiðið er að lágmarka áhrif á bílastæði og koma til móts við þá sem starfa og stunda nám á svæðinu.

Atli Björn Levy forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu hjá Betri samgöngum kynnti hvað er næst á döfinni í framkvæmdunum.
Rafskútustæðum fjölgað
Lögð er áhersla á að halda aðgengi að svæðinu eins góðu og mögulegt er á framkvæmdatímanum. Ein akrein í hvora átt verður opin á Nauthólsvegi og aðkoma að HR verður tryggð.
Samhliða framkvæmdunum verður einnig unnið að því að bæta aðstöðu fyrir aðra ferðamáta. Rafskútustæðum verður meðal annars fjölgað í nágrenni HR og breyting verður gerð á leið 8 með Strætó en fyrirhugað er að lengja leiðina í gegnum HÍ- svæðið og Lækjargötu, alla leið að Skúlagötu.
Stígatengingar verða einnig opnar á framkvæmdatímanum. Stoppistöðvar almenningssamgangna verða áfram í notkun en þær færast til eftir því sem framkvæmdunum vindur fram og unnið er á mismunandi hlutum svæðisins.

Kort af framkvæmdasvæði og akstursleiðum í 1. áfanga