Betri samgöngur hafa gert tvo mikilvæga efniskaupasamninga vegna uppbyggingar fyrstu lotu Borgarlínu. Annar samningurinn tekur til framleiðslu og afhendingar á 26 Borgarlínustöðvum og hinn til kaupa á steinum sem meðal annars verða notaðir við stöðvar, brautarpalla og í aðliggjandi almenningsrýmum. Þess má geta að annað fyrirtækið sem samið var við hefur nýlega afhent 29 stöðvar fyrir léttlestarkerfið í Kaupmannahöfn. Heildarsamningsverð vegna fyrstu lotu er um 10,25 milljónir evra án virðisaukaskatts eða tæpur einn og hálfur milljarður íslenskra króna.

Innkaupin voru boðin út á evrópska efnahagssvæðinu. Þrjú tilboð bárust í framleiðslu og afhendingu á Borgarlínustöðvum sem auglýst var í maí og tvö tilboð í granít og önnur steinefni sem auglýst voru í mars. Báðir samningarnir sem voru gerðir í kjölfarið reyndust nokkuð undir kostnaðaráætlun.
„Með þessum samningum er stigið mikilvægt skref í undirbúningi fyrstu lotu Borgarlínu. Samræmd hönnun stöðva og vandað efnisval skipta miklu máli fyrir ásýnd kerfisins, endingu mannvirkjanna og góða upplifun farþega. Um leið tryggja samningarnir að framleiðsla og afhending geti fylgt framkvæmdaáætlun verkefnisins,“ segir Atli Björn Levy, forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu.
Samræmdar og aðgengilegar Borgarlínustöðvar
Samið var við danska fyrirtækið HSM Industri A/S um framleiðslu og afhendingu á 26 stöðvum fyrir fyrstu lotu Borgarlínu. Hver stöð samanstendur af tveimur fullbúnum brautarpöllum, einum fyrir hvora akstursstefnu.
Samningsverð stöðvanna fyrir fyrstu lotu er tæplega 7,8 milljónir evra án virðisaukaskatts eða um 1,1 milljarður króna. Tilboð HSM Industri nam aðeins 73% af kostnaðaráætlun.
Samningurinn nær til burðarvirkja stöðvanna og þess búnaðar og efnis sem þeim tilheyrir. HSM Industri mun jafnframt setja upp fyrstu stöðina í Reykjavík. Hún verður viðmiðunarstöð fyrir áframhaldandi framleiðslu og afhendingu. Staðsetning fyrir viðmiðunarstöð hefur ekki verið ákveðin en líklegt er að hún verði á Nauthólsvegi við Háskólann í Reykjavík.
Samningurinn er jafnframt rammasamningur og felur í sér möguleika á kaupum á stöðvum fyrir síðari lotur Borgarlínu. Slík viðbótarkaup eru þó valkvæð og ekki hluti af skuldbindandi kaupum vegna fyrstu lotu.

Ásýndarmynd af Borgarlínustöð.
Steinefni fyrir stöðvar og almenningsrými
Jafnframt var samið við danska fyrirtækið Zurface A/S um framleiðslu og afhendingu á granít- og basaltsteinum. Efnin verða meðal annars notuð í yfirborðsfrágang, kanta, rampa og brautarpalla Borgarlínustöðva, auk aðliggjandi almenningsrýma.
Samningsverð steinefnanna er 2,6 milljónir evra án virðisaukaskatts eða um 376 milljónir íslenskra króna. Tilboðið nam aðeins 82% af kostnaðaráætlun. Afhending fer fram í áföngum næstu fimm árin eða svo, í takt við framvindu framkvæmda. Gerðar eru ítarlegar kröfur um eiginleika, uppruna og gæði efnisins og þurfa afhentar vörur að samræmast samþykktum sýnum og hönnunargögnum.

Kort af 1. lotu Borgarlínu.
Fyrsta lota Borgarlínu liggur milli Ártúnshöfða í Reykjavík og Hamraborgar í Kópavogi. Hún er um 14,5 kílómetrar að lengd og liggur meðal annars um Suðurlandsbraut, miðborg Reykjavíkur, Vatnsmýri, yfir nýja Fossvogsbrú og um Kársnes.