22. október 2026

Uppbygging Borgarlínu við Hlemmtorg

Á næstu dögum hefjast framkvæmdir við næsta áfanga endurgerðar Hlemms. Framkvæmdirnar fela meðal annars í sér uppbyggingu Borgarlínu um Hlemmtorg, nýja stoppistöð, endurgerð gatnamóta og göturýmis og uppbyggingu nýs torgsvæðis. Gert er ráð fyrir að þessum áfanga framkvæmda ljúki í lok árs 2027.

Samið hefur verið við Gröfu og Grjót um framkvæmd áfangans. Verkið er hluti af fyrstu lotu Borgarlínu. Umfangsmikil endurgerð Hlemms felst í að skapa aðlaðandi, öruggt og gönguvænt borgarrými með góðri aðstöðu fyrir almenningssamgöngur, gangandi og hjólandi vegfarendur.

Akreinar um sjálft torgið verða eingöngu ætlaðar almenningssamgöngum og viðbragðsaðilum. Þannig skapast aukið rými fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og umhverfið verður rólegra og öruggara.

Gatnamót Snorrabrautar og Hverfisgötu verða endurgerð í framkvæmdunum ásamt götukafla á Snorrabraut, frá Bríetartúni að Hverfisgötu. Leið Borgarlínu um torgsvæði Hlemms og uppsetningu stoppistöðvar Borgarlínu á svæðinu verður lögð.

Innviðir endurnýjaðir samhliða framkvæmdum

Framkvæmdirnar við Hlemm snúa ekki eingöngu að því sem sést á yfirborðinu. Samhliða uppbyggingu Borgarlínu og endurgerð göturýmis verða mikilvægar lagnir og aðrir innviðir neðanjarðar endurnýjaðir. Þar á meðal eru fráveitulagnir, vatns- og hitaveitulagnir, raflagnir, fjarskiptalagnir og lagnir fyrir umferðarljós.

Betri Samgöngur, Veitur og Reykjavíkurborg vinna saman að framkvæmdunum og endurnýjun innviða á svæðinu.