Mynd af svæðinu áður en framkvæmdir hófust.

Laugavegur við Hlemm

Framkvæmdin felur í sér heildarendurgerð götustæðis og gangstétta á Laugavegi milli Hlemms og Katrínartúns. Verkið nær einnig til Mjölnisholts norðan við Laugaveg auk tengisvæða Laugarvegar við Ásholt og Mjölnisholt sunnan megin.  Framkvæmdin er hluti af fyrstu lotu Borgarlínu. Sérakreinar verða eingöngu ætlaðar almenningssamgöngum og viðbragðsaðilum.  

Smíði Fossvogsbrúar þarf að hluta til að vinna á nóttunni vegna nálægðar við Reykjavíkurflugvöll.

Framkvæmdir við Fossvogsbrú

Gerð landfyllinga, sjóvarna og nýbygging Öldu — brúar yfir Fossvog. Verkið er hluti af fyrstu lotu Borgarlínu og tengir saman vesturhluta Kópavogs og Reykjavík. Brúin er ætluð Borgarlínuvögnum, strætisvögnum, gangandi og hjólandi vegfarendum, auk forgangsakstri lögreglu, sjúkraflutninga og slökkviliðs. Fossvogsbrú verður 270 m löng og allt að 17 m breið. 

Nauthólsvegur-HR

Uppbygging innviða fyrir Borgarlínu við Nauthólsveg og HR. Verkið er hluti af fyrstu lotu Borgarlínu og felur í sér breytingar á götusniði Nauthólsvegar, Menntavegar og Menntasveigs ásamt gatnamótum og tengingum á svæðinu. Sérrými fyrir almenningssamgöngur verður komið fyrir í miðju götuþversniði, aðskilið frá akreinum fyrir almenna umferð með umferðareyjum. Þá verða gerðir hjóla- og göngustígar beggja vegna götunnar.