Uppbygging innviða fyrir Borgarlínu við Nauthólsveg og HR. Verkið er hluti af fyrstu lotu Borgarlínu og felur í sér breytingar á götusniði Nauthólsvegar, Menntavegar og Menntasveigs ásamt gatnamótum og tengingum á svæðinu. Sérrými fyrir almenningssamgöngur verður komið fyrir í miðju götuþversniði, aðskilið frá akreinum fyrir almenna umferð með umferðareyjum. Þá verða gerðir hjóla- og göngustígar beggja vegna götunnar.
Núverandi hringtorgi á gatnamótum Nauthólsvegar og Menntavegar verður breytt í ljósastýrð gatnamót. Vestan Háskólans í Reykjavík verður byggð ný Borgarlínustöð. Ný aðkoma verður gerð að aðalinngangi HR og ný aðkomugata gerð að Landhelgisgæslunni.
Framkvæmdin er samstarfsverkefni Betri samgangna, Reykjavíkurborgar og Veitna.
Upplýsingum verður miðlað reglulega til hagaðila á framkvæmdasvæðinu og hægt er að hafa samband í tölvupósti á netföngin: borgarlinan@borgarlinan.is eða upplysingar@reykjavik.is
Framkvæmdatími
Ágúst 2026 - júlí 2028



Nauthólsvegur
Aðgengi og bílastæði
Aðgengi og bílastæði

Áhersla er lögð á að lágmarka áhrif framkvæmda á umferð allra samgöngumáta. Gerð hefur verið áætlun um bráðabirgðavegi og stígtengingar á framkvæmdatíma, eins og sýnt er á yfirlitskorti fyrir 1. áfanga. Sú áætlun miðar að því að byrjað verði á framkvæmdum nyrst á framkvæmdasvæðinu og verkið unnið til suðurs í 7 áföngum.
Tímalengd hvers áfanga er áætluð og kemur fram á yfirlitsmyndum. Athugið að þetta er áætlun hönnuða og getur tekið breytingum þegar verktaki kemur að verkinu. Ein bíla akrein í hvora átt verður ávallt opin. Stoppistöðvum Strætó verður haldið opnum allan framkvæmdatímann en þær verða færðar til eftir því sem nauðsyn krefur. Bílastæðum við HR mun fækka á framkvæmdatímanum, misjafnlega mikið eftir verkáföngum.
Áætlað er að hefja framkvæmdir í ágúst 2026 og skal þeim lokið í júlí 2028.
Helstu verkþættir:
Öryggis- og umhverfismál
Áfangi 1
Júlí 2026 - Haust 2027
Áfangi 2
Vor 2027 - Sumar 2028
Áfangi 3
Haust 2026 - Sumar 2028
Lokið skal við framkvæmdina í heild í júlí 2028
Við hvetjum alla hagaðila og vegfarendur til að kynna sér framkvæmdina vel og hafa samband ef frekari upplýsingar vantar eða ef spurningar vakna.
Sendið tölvupóst: borgarlinan@borgarlinan.is
Betri samgöngur
Reykjavíkurborg
Veitur
Verktaki Grafa og Grjót
VerktakiMalbikunarstöðin Höfði
Borgarlínan er hluti af innviðauppbyggingu Samgöngusáttmálans á höfuðborgarsvæðinu.
Innviðir fyrir almenningssamgöngur eru 42% af fjárfestingum sáttmálans, 42% fara í uppbyggingu stofnvega, 13% í gerð göngu- og hjólastíga og 3% fara í umferðarstýringu, öryggi og flæði.
