Laugavegur við Hlemm

Framkvæmdin felur í sér heildarendurgerð götustæðis og gangstétta á Laugavegi milli Hlemms og Katrínartúns. Verkið nær einnig til Mjölnisholts norðan við Laugaveg auk tengisvæða Laugarvegar við Ásholt og Mjölnisholt sunnan megin.  Framkvæmdin er hluti af fyrstu lotu Borgarlínu. Sérakreinar verða eingöngu ætlaðar almenningssamgöngum og viðbragðsaðilum.  

Á Laugavegi og Mjölnisholti norður verður jarðvegsskipt undir götusvæði og hliðarsvæðum og gengið frá nýju yfirborði í samræmi við fyrirliggjandi hönnun. Framkvæmdin felur jafnframt í sér endurnýjun veitukerfa, þar á meðal fráveitu, hita- og vatnsveitu, snjóbræðslukerfa og fjarskiptalagna. Auk þess verður gatnalýsing, skilti og merkingar endurnýjaðar. Í tengisvæðum Laugavegs við Ásholt og Mjölnisholt sunnanvert verður yfirborð, lagnir, götulýsing skilti og merkingar endurnýjaðar í samræmi við fyrirliggjandi hönnun.

  • Betri samgöngur í samstarfi við Reykjavíkurborg og Veitur standa að framkvæmdinni. Allt kapp verður lagt á að hagaðilar og íbúar á svæðinu verði ekki fyrir óþægindum á framkvæmdatíma en álag fylgir því að vera nálægt framkvæmdasvæði.
  • Hægt er að hafa samband í tölvupósti á netföngin:  borgarlinan@borgarlinan.is og upplysingar@reykjavik.is eða í síma: 411 1111

 

 

Framkvæmdatími

Maí 2026- vor 2027

Mynd af svæðinu áður en framkvæmdir hófust.
Mynd af svæðinu áður en framkvæmdir hófust.

Framkvæmdasvæðið

Kort af framkvæmdasvæðinu.

Framkvæmdir hefjast í maí

  • Útboð var auglýst í apríl 2026 og áætlað að framkvæmdir hefjist í maí.
  • Áætluð verklok eru vorið 2027

Hvað verður gert?

Verkið felst í megindráttum í eftirfarandi:
  • Rif og förgun á malbiki, hellum, steypu auk götugagna.
  • Jarðvegsskiptum og fullnaðarfrágangi fyllinga undir götur og gangstéttar.
  • Sérakreinar Borgarlínu (250m)​
  • Göngu- og hjólastígar (500m)​
  • Endurnýjun veitukerfa, þar á meðal fráveitu, hita- og vatnsveitu auk fjarskiptalagna.
  • Nýtt snjóbræðslukerfi (820m2)​
  • Núverandi snjóbræðslukerfi endurnýjað (700m2)​
  • Fullnaðarfrágangi gatnalýsingar,  skilta og merkinga.

Áhrif framkvæmda

Áhrif vegna 1. áfanga

Íbúar og fyrirtæki

Svæðið verður girt af og lokað fyrir umferð eftir því sem hér segir:

Áfangi 1 – Suðurhlið lokuð, aðgengi gangandi vegfarenda og hjólandi um norðurhlið.

 

Áhrif vegna 2. áfanga

Íbúar og fyrirtæki

Svæðið verður girt af og lokað fyrir umferð eftir því sem hér segir:

Áfangi 2 – Norðurhlið lokuð, aðgengi gangandi vegfarenda og hjólandi um suðurhlið.

Áhrif vegna 3. áfanga

Íbúar, fyrirtæki og gestir

Svæðið verður girt af og lokað fyrir umferð eftir því sem hér segir:

Áfangi 3 – Laugavegur opinn, minniháttar framkvæmdir á Katrínartúni.

Borgarlínan um Hlemm

Hlemmsvæðið hefur verið skipulagt sem miðborgartorg, svæði fyrir margvíslegar uppákomur og leik í öruggu umhverfi. Það verður endurskapað sem almenningsrými fyrir alla aldurshópa með aðgengi fyrir öll og akandi umferð verður beint frá torgsvæðinu.

Um er að ræða umfangsmikla framkvæmd Reykjavíkurborgar sem felur í sér endurgerð gatnamóta og göturýmis, nýtt torgsvæði og uppbyggingu Borgarlínu á svæðinu og uppsetningu tveggja Borgarlínustöðva á svæðinu. Um var að ræða sameiginlegt útboð Reykjavíkurborgar, Betri samgangna og Veitna. Áætlað er að þessar framkvæmdir hefjist á næstum vikum.

Með framkvæmdunum verður Hlemmtorg mótað sem sterkur borgarkjarni með auknu rými fyrir gangandi og hjólandi og bættri aðstöðu fyrir almenningssamgöngur sem verða eina akandi umferðin um torgið. Umhverfið í kring verður gönguvænna og meira aðlaðandi fyrir fjölbreytt mannlíf. Þá verður leið hjólandi fólks stórbætt um svæðið ásamt því að sköpuð verður hágæða aðstaða fyrir hjólreiðar á svæðinu m.a. aðstaða til viðgerða og geymslu hjóla.

Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á vefsíðu Reykjvíkurborgar.

 

Ásýndarmynd Mandaworks af Hlemmtorgi en framkvæmdar hefjast þar á næstunni.

Hver koma að verkinu?

Betri samgöngur

Reykjavíkurborg

Veitur

Verktaki framkvæmdarinnarGrafa og Grjót

Verktaki framkvæmdarinnarMalbikunarstöðin Höfði

Samgöngusáttmálinn