16. október 2026

Nýr áfangi við Nauthólsveg að hefjast

Framkvæmdir vegna Borgarlínu á Nauthólsvegi halda áfram og nú er undirbúningur hafinn fyrir næsta áfanga verksins. Undanfarnar vikur hefur verið unnið að jarðvegsskiptum og gerð bráðabirgðavega á svæðinu. Með næsta áfanga verða breytingar á umferð um Menntasveig og staðsetningu stoppistöðvar Strætó við Háskólann í Reykjavík.

Undanfarið hefur verið unnið að jarðvegsskiptum á norðvesturhluta Nauthólsvegar, framan við lóð Flugstjórnarmiðstöðvarinnar (Avians), og komið þar fyrir fargi til að undirbúa jarðveginn fyrir áframhaldandi framkvæmdir.

Framkvæmdir við Nauthólsveg þar sem meðal annars er verið að leggja hjáleiðir. Opið fyrir alla umferð á framkvæmdatíma.

Þá er malbikun bráðabirgðavega lokið en þeir tryggja aðkomu að Háskólanum í Reykjavík og Reykjavíkurflugvelli á meðan framkvæmdir standa yfir. Einnig hefur verið malbikaður bráðabirgðavegur yfir bæjarstæði Nauthóls, vestan við HR.

Háskólinn í Reykjavík

Nú er að hefjast annar áfangi framkvæmdanna og hefur framkvæmdaröð verið endurskoðuð frá upphaflegum áætlunum. Helsta breytingin felst í því að vinnu við Menntasveig verður flýtt og verður honum því lokað fyrir umferð á meðan framkvæmdir þar standa yfir.

Þrátt fyrir lokunina verður aðkoma að Háskólanum í Reykjavík óbreytt.

Aðkoma að malarbílastæðum vestan við HR verður áfram möguleg, annars vegar frá Menntavegi og hins vegar um nýjan bráðabirgðaveg sem liggur yfir bæjarstæði Nauthóls.

Stoppistöð Strætó færð nær inngangi HR

Samhliða breytingunum verður stoppistöð Strætó við HR færð að rútubílastæðum við hringtorgið nærri inngangi háskólans.

Strætó við Menntasveig

Núverandi strætóstoppustöð á Menntasveigi verður færð á meðan framkvæmdir eru í gangi.

Farþegar eru hvattir til að kynna sér breytta staðsetningu stoppistöðvarinnar þegar breytingin tekur gildi sem verður í lok október.

Kort sem sýnir hvar nýjar strætóstoppustöð verða.

Upplýsingar um framgang verksins og breytingar á umferð verða birtar jafnóðum á framkvæmdasíðu verkefnisins.