25. september 2026

Brúarsmíði gengur vel

Framkvæmdir við Fossvogsbrú, Öldu, ganga vel. Haustlægðirnar hafa þó haft áhrif síðustu daga en nú sér til betri tíðar. Brúarsmíði hófst formlega í vor og hefur vinna við undirstöður og burðarása verið í aðalhlutverki undanfarna mánuði.

 

Framkvæmdasvæðið í Świnoujście í Póllandi þar sem verið að vinna að brúarstöplum. Mynd: Aarsleff BIZ, Swinoujscie.

Framkvæmdasvæðið í Świnoujście í Póllandi þar sem verið að vinna að brúarstöplum. Mynd: Aarsleff BIZ, Swinoujscie.

Um þessar mundir er verið að steypa brúarstöpla í Póllandi sem verða svo fluttir til landsins á næsta ári, hífðir á sinn stað og steyptir fastir í undirstöðurnar.

Um 14 tonn af stáli, um 100 m³ af steypu og um 100 metrar af kælilögnum voru notuð í brúarstöpulinn.

Stálvirki brúarinnar verður einnig smíðað í Póllandi, flutt til landsins og komið fyrir á brúarstöplunum. Í kjölfarið hefst svo vinna við brúargólf og frágang.

Brúarsmíði í Póllandi. Mynd: Aarsleff BIZ, Swinoujscie.

Framkvæmdasvæðið í Świnoujście í Póllandi þar sem verið að vinna að brúarstöplum. Mynd: Aarsleff BIZ, Swinoujscie.

Margar hendur vinna stórt verk. Mynd: Aarsleff BIZ, Swinoujscie.

 

Stór hluti framkvæmda ársins 2026 snýr að því að ljúka undirstöðum brúarinnar. Á næsta ári verður komið að einum sýnilegasta áfanga framkvæmdarinnar þegar brúin sjálf fer smám saman að rísa yfir Fossvog.

Unnið er hörðum höndum í Fossvogi að burðarásum brúarinnar. Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson/Arctic Images

Burðarásar látnir síga ofan í sjóinn. Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson/Arctic Images

Burðarásar látnir síga ofan í sjóinn. Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson/Arctic Images

Kafarar hafa unnið að burðarásum neðarsjávar í Fossvogi og steypuvinna stendur yfir við burðarása á landfyllingum beggja vegna vogsins. Fyrsta tvær þurrkvíarnar voru sett niður í vikunni en þeim er ætlað að skapa öruggt umhverfi við uppsteypu brúarstöpla. Fleiri þurrkvíar verða settar niður næstu daga.

Kafarar að störfum. Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson/Arctic Images

Guðjón Örn Björnsson, yfirverkefnastjóri Ístak segir að næstu daga, vonandi um helgina, verða settar niður síðustu tvær þurkkvíarnar. „Að því loknu verður steyptur botn í þurrkvíarnar og þær tæmdar til að tryggja virkni þeirra. Þá lýkur fræmkvæmdum á sjó þetta árið en haldið verður áfram vinnu við landsstöpla. Við sjáum fram á að framkvæmdir hér á Íslandi fari í dvala yfir harðasta veturinn og hefjist aftur næsta vor, en á meðan halda framkvæmdir áfram í Póllandi.”