1. september 2026

Borgar­línu­fram­kvæmdir hafnar við Nauthólsveg

Framkvæmdir eru hafnar við uppbyggingu innviða fyrir Borgarlínu við Nauthólsveg og HR. Verkið er hluti af fyrstu lotu Borgarlínu og felur í sér endurgerð á götusniði Nauthólsvegar, Menntavegar og Menntasveigs ásamt gatnamótum og tengingum. Betri samgöngur í samstarfi við Reykjavíkurborg og Veitur að standa að verkinu og eru verklok áætluð í júlí 2028. Allan framkvæmdatímann verður opið fyrir alla umferð um svæðið með hjáleiðum.

Skrifað var undir verksamning við Gröfu og Grjót og Malbikunarstöðina Höfða sem áttu lægsta tilboðið eða 2,27 milljarða króna með virðisaukaskatti. Samningurinn er undir áætluðum kostnaði við verkið sem var metinn 2,9 milljarðar.  

 

„Með framkvæmdunum við Nauthólsveg styrkjum við tengingu almenningssamgangna milli Fossvogsbrúar og Vatnsmýrarinnar með nýju sérrými. Um leið verða aðstæður fyrir gangandi og hjólandi bættar verulega, en áfram verður ein akrein fyrir bílaumferð í hvora átt. Framkvæmdirnar skapa jafnframt tækifæri fyrir Veitur til að endurnýja lagnir sínar,“ segir Atli Björn Levy, forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu.

Breytingarnar fela í sér að breikka þversnið Nauthólsvegar og að koma fyrir sérrými fyrir almenningssamgöngur í miðri götu, aðskilið frá akreinum fyrir almenna umferð sem áfram verður 1+1. Innifalið í þessu verki er gerð Borgarlínustöðvar við HR, ný aðkoma að HR, ný aðkoma að Landhelgisgæslunni og ljósastýrð gatnamót í stað hringtorgs.

Ásýndarmynd af Borgarlínustöð við HR.

Aðgengi tryggt á framkvæmdatíma

Aðgengi fyrir akandi, hjólandi, gangandi og almenningssamgöngur verður tryggt allan framkvæmdatímann með hjáleiðum. Ein bílaakrein í hvora átt verður opin eins og verið hefur. Tengingar verða gerðar við stígana í Öskuhlíð og stoppistöðvar Strætó opnar allan tímann en færðar eftir framvindu verksins. Áhrifum á bílastæði verður haldið í lágmarki.

Kort af framkvæmdasvæðinu.

Tenging við Fossvogsbrú

Framkvæmdirnar við Nauthólsveg koma í beinu framhaldi af Fossvogsbrú sem nú er í smíðum og áætlað er að verði tilbúin til notkunar sumarið 2028. Fossvogsbrúin verður 270 metra löng og tengir suðurhluta höfuðborgarsvæðisins við miðborgina með nýjum hætti. Brúin, líkt og framkvæmdirnar við Nauthólsveg og HR, er hluti af fyrstu lotu Borgarlínunnar.  Hún er ætluð almenningssamgöngum, gangandi og hjólandi vegfarendum, auk forgangsakstri lögreglu, sjúkraflutninga og slökkviliðs.

Sérstök framkvæmdasíða er á vef Borgarlínunnar þar sem allar helstu upplýsingar um verkefnið er að finna:  borgarlinan.is/nautholsvegur-hr