5. nóvember 2026

Bráðabirgða­tenging Borgarlínu um Nesbrautarbrú boðin út

Vegagerðin og Veitur hafa auglýst útboð á for- og verkhönnun bráðabirgðatengingar Borgarlínu um Nesbrautarbrú í Reykjavík. Tengingin mun liggja frá Arnarhlíð við Hlíðarenda að Snorrabraut við Burknagötu og tengja saman hluta fyrstu lotu Borgarlínu þar til Miklubrautargöng verða tekin í notkun. Verkefnið er hluti af Samgöngusáttmála ríkisins og sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

Um er að ræða mikilvægan þátt í undirbúningi fyrstu lotu Borgarlínu sem miðar að því að tryggja samfellda leið Borgarlínu á þessum kafla áður en framtíðarlausn með Miklubrautargöngum verður að veruleika.

Verkefnið felur meðal annars í sér hönnun sérakreina Borgarlínu, breytingar á núverandi götum og gatnamótum, aðlögun göngu- og hjólastíga og hönnun undirganga. Þá verður unnið að umferðargreiningum, umferðarstýringu og breytingum á lögnum Veitna.

Útboðsauglýsingu má sjá hér. Frestur til að skila tilboðum er til kl. 14:00 þriðjudaginn 1. desember 2026.

Kort af svæðinu