29. október 2026

Annar áfangi framkvæmda við Nauthólsveg og HR að hefjast

Nú er að hefjast annar áfangi framkvæmda við uppbyggingu innviða fyrir Borgarlínu við Nauthólsveg og Háskólann í Reykjavík (HR). Áfram verður tryggt aðgengi fyrir akandi, gangandi og hjólandi vegfarendur auk almenningssamgangna á framkvæmdatímanum.

Framkvæmdasvæði verktaka breytist þannig að við bætast svæði vestan Nauthólsvegar auk þess sem núverandi Menntasveigur lokast og verður vinnusvæði. Þetta hefur engin áhrif uppsetningu bráðabirgða göngu- og hjólastíga gegnum framkvæmdasvæðið frá áfanga eitt og ekki önnur áhrif á akstur en þau að Menntasveigur lokast og akstri er beint um bráðabirgðavegi gegnum bílastæði sunnan Menntasveigs. 

Ein akrein verður áfram opin í hvora átt og stoppistöðvar Strætó verða áfram í notkun en kunna að færast til eftir því sem framkvæmdum miðar áfram.

Áætlað er að framkvæmdir í öðrum áfanga standi frá 30. október 2026 til 1. maí 2027. Upplýsingum um breytingar á umferðarfyrirkomulagi verður miðlað reglulega eftir því sem framkvæmdum vindur fram.

Kort af framkvæmdasvæði Nauthólsvegur HR

Gildir frá 30.10.2026 – 01.05.2027

Framkvæmdirnar eru samstarfsverkefni Betri samgangna, Reykjavíkurborgar og Veitna. Verktaki er Grafa og grjót ehf. og verkfræðistofan EFLA hefur eftirlit með verkinu.

Hægt er að fylgjast með framgangi verkefnisins á framkvæmdasíðunni.