10. nóvember 2026

Úr orðum í akreinar

„Framkvæmdir við fyrstu lotu Borgarlínunnar eru komnar á fullt skrið og eitt stærsta samgönguverkefni landsins er farið að taka á sig mynd. En hvað felst í þessari innviðauppbyggingu og aukinni þjónustu, hvernig mun hún virka og hvað er fram undan?“ segir Ólöf Kristjánsdóttir verkefnisstjóri Borgarlínu í aðsendri grein á Vísi.

Ólöf Kristjánsdóttir, verkefnisstjóri Borgarlínu
Framkvæmdir við fyrstu lotu Borgarlínunnar eru komnar á fullt skrið og eitt stærsta samgönguverkefni landsins er farið að taka á sig mynd. En hvað felst í þessari innviðauppbyggingu og aukinni þjónustu, hvernig mun hún virka og hvað er fram undan?

Ég er ein þeirra sem hafa unnið að undirbúningi á þessu nýja almenningssamgöngukerfi undanfarin ár og fæ reglulega spurninguna: Hvað er Borgarlínan eiginlega?

Það er eðlileg spurning enda er um að ræða umfangsmikið verkefni sem snýst um mun meira en nýja strætisvagna. Með henni verður byggt upp nýtt almenningssamgöngukerfi á höfuðborgarsvæðinu þar sem áhersla er lögð á tíðari ferðir, styttri ferðatíma og aukinn áreiðanleika.

Og hvernig er hægt að ná þeim markmiðum? Strætisvagnar njóta nú þegar sérakreina og ljósaforgangs á nokkrum stöðum. Með Borgarlínunni er hins vegar í fyrsta sinn hér á landi ráðist í uppbyggingu heildstæðs samgöngukerfis sérstaklega fyrir almenningssamgöngur.

Í grunninn byggist Borgarlínan á því sem kallað er BRT-kerfi: Heildstæðu kerfi sérakreina fyrir almenningssamgöngur með forgangi á gatnamótum og betri stöðvum með aðgengi fyrir öll.

Tíðari ferðir og meiri áreiðanleiki

Reynslan sýnir að tíðni og áreiðanleiki skipta mestu máli þegar kemur að því að gera almenningssamgöngur að raunhæfum valkosti. Þessir nýju vagnar stofnleiða munu aka á fimm til sjö mínútna fresti á álagstímum og á 10–15 mínútna fresti utan þeirra.

Til að tryggja áreiðanleika munu vagnarnir aka á sérakreinum þar sem umferð er þyngst og njóta forgangs á ljósastýrðum gatnamótum. Þannig verður hægt að draga úr töfum og tryggja að vagnarnir haldi betur áætlun. Sérakreinar munu líka nýtast almennum strætisvögnum og neyðarakstri sjúkrabíla, slökkviliðs og lögreglu.

Samkvæmt Samgöngusáttmálanum verður Borgarlínan byggð upp í áföngum til ársins 2040. Fullbúið kerfi mun samanstanda af sjö leiðum sem tengja saman öll sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins og fléttast saman í heildstæðu leiðakerfi almenningssamgangna.

Stórir rafdrifnir vagnar, ekki lest

Borgarlínan verður með 18 metra löngum rafdrifnum liðvögnum sem aka á gúmmíhjólum, líkt og hefðbundnir strætisvagnar. Vagnarnir verða þó stærri og geta flutt fleiri farþega. Greitt verður fyrirfram og farþegar geta því gengið inn um allar dyr, sem styttir viðkomutíma á stöðvum.

Stöðvar verða einnig frábrugðnar hefðbundnum strætóstoppistöðvum og minna fremur á léttlestarstöðvar. Þá mun þrepalaust aðgengi auðvelda öllum farþegum að komast í og úr vögnunum.

Framkvæmdir komnar á fullt skrið

Eftir margra ára undirbúning eru framkvæmdir við fyrstu lotu Borgarlínunnar nú hafnar á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Unnið er við Fossvogsbrú, Nauthólsveg og Háskólann í Reykjavík, auk Laugavegar austan við Hlemm. Þá eru framkvæmdir að hefjast við Hlemmtorg og á tengiköflum báðum megin við Fossvogsbrú. Í byrjun næsta árs er áætlað að hefja framkvæmdir á Stórhöfða og á nýrri brú sem mun tengja saman efra og neðra svæði Ártúnshöfða.

Áætlað er að fyrsta lota verði fullbúin árið 2031 og nái frá Ártúnshöfða, um Suðurlandsbraut og Laugaveg, að Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík, yfir Fossvog og að Hamraborg í Kópavogi.

En það þarf ekki að bíða til ársins 2031 eftir að nýir innviðir nýtist farþegum. Sérakreinar Borgarlínunnar verða teknar í notkun af strætisvögnum jafnóðum og þær verða tilbúnar. Stefnt er að því að fyrstu kaflarnir við Hlemm og Háskólann í Reykjavík verði teknir í notkun árið 2028.

Fossvogsbrú tekur á sig mynd

Ein umfangsmesta framkvæmd fyrstu lotunnar er Fossvogsbrú, sem hefur fengið heitið Alda og mun tengja Reykjavík og Kópavog yfir Fossvog.

Framkvæmdir við brúna hófust í vor og hafa gengið vel. Alls hafa verið boraðar 36 stálstyrktar steyptar undirstöður niður á berggrunn og reist tímabundin mannvirki sem munu nýtast við áframhaldandi brúarsmíði.

Á sama tíma er smíði stálburðarvirkis brúarinnar í fullum gangi í Póllandi. Brúarhlutarnir verða fluttir sjóleiðina til Íslands og er stefnt að því að stálburðarvirkið verði reist sumarið 2027. Áætlað er að brúin verði tilbúin til notkunar sumarið 2028.

Ekki lengur bara framtíðarsýn

Samhliða framkvæmdum þessara fyrstu kafla er unnið að áframhaldandi undirbúningi annarra kafla í fyrstu lotunni, og á sama tíma er unnið að hönnun og undirbúningi næstu áfanga. Þar má meðal annars nefna leiðir um Kópavog, Keldnaland, Mosfellsbæ og Hafnarfjörð.

Uppbygging almenningssamgangna er langtímaverkefni sem mun taka nokkur ár, en ávinningurinn verður ekki bundinn við verklok alls kerfisins. Með hverjum nýjum kafla bætast við innviðir sem munu nýtast almenningi og skapa forsendur fyrir betri þjónustu.

Borgarlínan er ekki lengur bara framtíðarsýn á teikniborði. Framkvæmdir eru hafnar og á næstu árum munu íbúar höfuðborgarsvæðisins sjá nýtt almenningssamgöngukerfi taka á sig mynd!

Höfundur er samgönguverkfræðingur, sviðsstjóri innviða hjá COWI og verkefnisstjóri Borgarlínu.