Framkvæmdir við uppbyggingu innviða fyrir Borgarlínu á Laugavegi, frá gatnamótum við Katrínartún að Bolholti, hefjast eftir áramót. Verkið var boðið út í september og er gert ráð fyrir að verksamningur verði undirritaður á næstu dögum.

Á nýja framkvæmdakaflanum verða lagðar miðjusettar sérakreinar fyrir almenningssamgöngur, nýir göngu- og hjólastígar og byggð Borgarlínustöð. Með framkvæmdunum verður aðstaða fyrir almenningssamgöngur, gangandi og hjólandi vegfarendur bætt til muna.

Framkvæmdin er í beinu framhaldi af þeirri uppbyggingu sem staðið hefur yfir frá því í byrjun sumars á Laugavegi, milli Hlemms og Katrínartúns. Þær hafa að mestu gengið vel og í nóvember var um helmingi verksins lokið.

Jarðvegsskiptum og framkvæmdum við fráveitu og vatnsveitu í götustæði er lokið. Nú er unnið að tengingu nýrra heimæða Veitna við hús og uppsetningu ljósastaura sunnan megin við götuna. Áætlað er að framkvæmdum á þessum kafla ljúki vorið 2027.
Verkið er unnið í samstarfi Betri samgangna, Veitna og Reykjavíkurborgar.
Í lok október hófust framkvæmdir við næsta áfanga endurgerðar Hlemms. Framkvæmdirnar fela meðal annars í sér uppbyggingu innviða fyrir Borgarlínu um Hlemmtorg, nýja stoppistöð, endurgerð gatnamóta og göturýmis auk uppbyggingar nýs torgsvæðis.
Akreinar um sjálft torgið verða eingöngu ætlaðar almenningssamgöngum og viðbragðsaðilum. Þannig skapast aukið rými fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og umhverfið verður rólegra og öruggara.
Reykjavíkurborg samdi við Gröfu og grjót um framkvæmd áfangans en Veitur og Betri samgöngur koma einnig að verkinu. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum við þennan áfanga ljúki í lok árs 2027.
Nánari upplýsingar má nálgast á framkvæmdasíðu verkefnisins á vef Borgarlínu.
