12. maí 2026

Undanþága veitt fyrir næturvinnu við Fossvogsbrú

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur veitt Ístaki hf. undanþágu til næturvinnu vegna framkvæmda við smíði Fossvogsbrúar. Ákvörðunin er mikilvægur áfangi fyrir framgang verksins og gerir verktaka kleift að vinna við nauðsynlega verkþætti án þess að skerða rekstur Reykjavíkurflugvallar. Undanþágan nær til framkvæmda á samtals 28 dögum fram til 2. júlí 2026.

 

Ákvörðun ráðuneytisins tryggir að unnt er að halda áfram með vandasama brúarsmíði í Fossvogi, en um leið eru settar skýrar kröfur um að dregið verði úr áhrifum á íbúa og að upplýsingar um verkið verði aðgengilegar.

Undanþágan var veitt að fenginni umsögn heilbrigðiseftirlits Reykavíkurborgar og Kópavogs. Hún er, sem fyrr segir, bundin skýrum skilyrðum um upplýsingagjöf og hávaðamælingar og móttöku ábendinga frá íbúum. Með undanþágunni skapast svigrúm til að halda verkinu áfram samhliða óskertum rekstri flugvallarins.

Á næstu vikum verður unnið að mikilvægum verkþáttum við undirstöður brúarinnar, þar á meðal niðurrekstur staura í Fossvogi. Leitast verður við að vinna sem mest á daginn enda vilji bæði verkkaupa og verktaka til þess. Ráðuneytið leggur jafnframt áherslu á að næturvinna verði takmörkuð eins og kostur er.

Framkvæmdaaðila ber að mæla hávaða á framkvæmdatíma, miðla niðurstöðum til viðkomandi stjórnvalda og halda úti aðgengilegum upplýsingum fyrir almenning um framgang verksins, mögulegt ónæði og tímasetningar einstakra verkþátta.

Smíði Fossvogsbrúar þarf að hluta til að vinna á nóttunni vegna nálægðar við Reykjavíkurflugvöll.

Fossvogsbrú er mikilvægt mannvirki í framtíðarskipulagi samgangna á höfuðborgarsvæðinu, staðsett í hjarta höfuðborgarsvæðisins og mun standa þar sem kennileiti um langa framtíð. Hún er lykilhluti uppbyggingar fyrstu lotu Borgarlínu. Brúin mun tengja suðurhluta höfuðborgarsvæðisins og Reykjavík með nýjum hætti og er ætluð almenningssamgöngum, gangandi og hjólandi vegfarendum, auk forgangsaksturs viðbragðsaðila.

Nánari upplýsingar um framkvæmdir fyrir Fossvogsbrú má nálgast hér.