Borun á sjó að næturlagi vegna smíði Fossvogsbrúar lýkur nú um helgina samkvæmt áætlun verktaka. Undirstöður brúarinnar Öldu yfir Fossvog eru í sex hlutum, þar af eru fjórir burðarásar á sjó. Nota þarf stóran bor sem nær upp í 35 metra hæð til að koma fyrir staurunum í burðarvirki brúarinnar og eingöngu er heimilt að nota slík vinnutæki þegar flugvöllurinn er lokaður.

Íbúar á Kársnesi sem búa næst framkvæmdasvæðinu hafa orðið fyrir varir við högghljóðin sem fylgja næturboruninni og þótt hljóðmælingar sýni að þau hafi verið við leyfileg mörk þá hafa þau því miður valdið sumum ónæði. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið veitti Ístaki hf. undanþágu til næturvinnu vegna framkvæmda við smíði Fossvogsbrúar í maí en nú er þessari vinnu að ljúka.
Guðjón Örn Björnsson, staðarstjóri Ístaks sem er verktaki brúarsmíðarinnar, segir að besti kosturinn væri auðvitað að borun á sjó færi fram í dagvinnu til að halda áhrifum á íbúa í lágmarki. ,,Næturvinna veldur einnig miklu óhagræði fyrir framkvæmdina, en í þessum verkþætti höfum við því miður ekki val um vinnutímann vegna nálægðar við flugvöllinn.”

Vegna nálægðar við Reykjavíkurflugvöll er eingöngu hægt að nota stóran krana sem þarf til að bora niður staura í burðarása brúarinnar í næturvinnu þegar völlurinn er lokaður. Myndin var tekin í byrjun júní.
Guðjón Örn segir að þegar niðurrekstri stauranna, borvinnan, ljúki um helgina þá verði í framhaldinu klárað að reka niður síðustu staurana á landfyllingunni við brautarenda Reykjavíkurflugvallar.
Kársnesmeginn er unnið að uppsteypu á undirstöðum landstöpuls (landkars). Landstöpull er steypta undirstaðan, endvirki brúarinnar, sem tekur við álagi frá brúargólfi og tengir brúna við landfyllinguna.

Vinna við landstöpul á landfyllingunni Kársnesmegin.
Á næstu dögum munum verða settar upp flotbryggjur Reykjavíkurmeginn til að komast að stauraundirstöðunum þeim megin. Flotbryggjurnar munu ná frá landi við burðarás 6 og að burðarásum 5 og 4 á sjó. Á þessum stálramma hvílir forsteypt plata sem sést á myndinni hér fyrir neðan.

Plata sem búið er að steypa og sett verður ofan á staurana sex sem eru í hverjum burðarás.
Þegar steypta platan er kominn á staurana verður hífður stálkassi, nokkurs konar þurrkví, ofan á staurana.

Á sjó verða staurarnir fylltir af steypu og að því loknu verða logsoðnir stálrammar á staurana. Hífingar sem fylgja þessum hluta verksins eru gerðar að næturlagi en eiga ekki valda miklu raski og eru mun hljóðlátari en borunin.

Fyrsta þurrkvíin er tilbúin. Þessir stálkassar verða hífðir ofan á staurana í burðarásum brúarinnar.
Vinna við stálramma og þurrkvíar er áætluð í ágúst og september.

Smíði Fossvogsbrúar miðar vel áfram og á sérstakri vefsíðu um Fossvogsbrú eru vikulega birtar upplýsingar um hvaða vinna er í gangi hverju sinni.
Myndir/Gunnar Svanberg