Verkís vinnur frumdrög að Borgarlínu um Hamraborg

Vegagerðin og Verkís hafa skrifað undir samning um gerð frumdraga að Borgarlínunni um Hamraborg. Verkefnið felur m.a. í sér gerð frumdraga að legu Borgarlínunnar í götusniði Hafnarfjarðarvegar innan Kópavogs og staðsetningu og útfærslu borgarlínustöðvar/-a í Hamraborg ásamt gerð kostnaðaráætlunar fyrir framkvæmd verksins.

Í útboðslýsingu kemur fram að Hamraborg sé mikilvæg samgöngumiðstöð, sem tengi alla ferðamáta og verði tengipunktur í leiðarneti Borgarlínunnar og Strætó. Hamraborg tengi einnig saman framkvæmdalotu 1, 2 og 4, eða þrjár af sex lotum Borgarlínunnar. Lota 1 er Hamraborg-Ártúnshöfði, lota 2 Hamraborg-Lindir og lota 4 Fjörður-Miklabraut (með viðkomu í Hamraborg).

Verkefnið var auglýst á útboðsvef opinberra útboða og á Evrópska efnahagssvæðinu (EES) og tilboð opnuð þriðjudaginn 27.júní sl. Gengið var til samninga við Verkís sem bauð í verkefnið með VSB verkfræðistofu, Rambøll og Urbana skipulagsráðgjöf.