10. júlí 2026

Smíði Fossvogsbrúar að taka á sig mynd

Framkvæmdir við smíði Öldu, brúar yfir Fossvog, hafa staðið yfir síðan í apríl og þeir sem leið eiga um Fossvoginn sjá glöggt hvernig burðarvirkið rís upp úr hafinu í beinni línu milli Kópavogs og Reykjavíkur.  Verktakarnir Ístak og Per Aarsleff AS skiptu framkvæmdasvæðinu upp í fjóra hluta. Landfyllingin á Kársnesi, vinnusvæði við Kópavogshöfn, framkvæmdasvæði á sjó og landfyllingin Reykjavíkurmegin. Verkinu miðar vel áfram og á sérstakri vefsíðu um Fossvogsbrú eru vikulega birtar upplýsingar um hvaða vinna er í gangi hverju sinni.

 

Gunnar Svanberg ljósmyndari fangaði nýlega nokkur augnablik á framkvæmdasvæðinu sem alla jafna iðar af lífi.