Upplýsandi fundur um matsáætlun vel sóttur

Kynningarfundur matsáætlunar vegna umhverfisáhrifa vegna fyrirhugaðra breytinga á gatnamótum Reykjanesbrautar – Bústaðavegar með tilliti til Borgarlínu var haldinn miðvikudaginn 29. mars í húsakynnum Reykjavíkurborgar.

Vegagerðin, í samvinnu við Reykjavíkurborg og Betri samgöngur, áformar breytingar á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar. Hluti af framkvæmdinni er að útfæra leið Borgarlínunnar milli Vogabyggðar og Stekkjarbakka.

Tilgangurinn er að efla alla ferðamáta, minnka umferðartafir á háannatíma og bæta umferðaröryggi. Framkvæmdirnar heyra undir Samgöngusáttmálann.

Á fundinum voru mögulegar lausnir fyrir gatnamótin og tengingar Borgarlínunnar kynntar sem og áherslur í komandi umhverfismati lausnanna.

Auk fulltrúa Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar og Betri samgangna voru á fundinum fulltrúar Borgarlínunnar og verkfræðistofunnar EFLU, sem er ráðgjafi tillagnanna.

Berglind Hallgrímsdóttir hjá EFLU kynnti mögulega kosti og frumdrög Gatnamóta Reykjanesbrautar – Bústaðavegar og tengingu Borgarlínunnar við Vogabyggð að Stekkjarbakka.

Kynningartími matsáætlunar til 27.04.2023.

Áætlunin er aðgengileg á vef Skipulagsstofnunar. Allar umsagnir skulu sendar á netfangið skipulag@skipulag.is.

Eftir kynningu Berglindar var fyrirspurnum fundargesta svarað og tóku þá fleiri sérfræðingar þátt í því að svara.

Að lokum voru opnar umræður milli fundargesta og sérfræðinga og útfærslur skoðaðar betur á veggspjöldum.

Fundurinn var tekinn upp og má sjá upptökuna hér fyrir neðan.

Upptaka frá fundinum.

Kynning EFLU.

Matsáætlun á vef Skipulagsstofnunar.