3. júní 2026

Framkvæmdir hafnar á Laugavegi við Hlemm

Framkvæmdir eru hafnar við heildarendurgerð götustæðis og gangstétta á Laugavegi milli Hlemms og Katrínartúns. Verkið er hluti af fyrstu lotu Borgarlínu og eru sérakreinar á þessum vegbút eingöngu ætlaðar almenningssamgöngum og viðbragðsaðilum. Nýir hjóla- og göngustígar verða lagðir samhliða og lagnir endurnýjaðar.  Betri samgöngur gerðu verksamning við Gröfu og grjót ehf. og Malbikunarstöðina Höfða sem áttu lægsta tilboðið í verkið.

Á Laugavegi og Mjölnisholti norður verður jarðvegsskipt undir götusvæði og hliðarsvæðum og gengið frá nýju yfirborði í samræmi við fyrirliggjandi hönnun. Framkvæmdin felur jafnframt í sér endurnýjun veitukerfa, þar á meðal fráveitu, hita- og vatnsveitu, snjóbræðslukerfa og fjarskiptalagna. Auk þess verður gatnalýsing, skilti og merkingar endurnýjaðar. Í tengisvæðum Laugavegs við Ásholt og Mjölnisholt sunnanvert verður yfirborð, lagnir, götulýsing skilti og merkingar endurnýjaðar í samræmi við fyrirliggjandi hönnun.

Betri samgöngur í samstarfi við Reykjavíkurborg og Veitur standa að framkvæmdinni. Áætlaður kostnaður var metinn tæpar 428 milljónir króna og bárust alls fjögur tilboð í verkið. Lægsta tilboðið og verksamningurinn sem Betri samgöngur gerði við við Gröfu og Grjót og Malbikunarstöðina Höfða var hins vegar nokkuð lægri eða tæpar 335 milljónir króna.

Gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki vorið 2027 og hafa verktakarnir skipt verkinu upp í þrjá áfanga. Nánari upplýsingar um framkvæmdina má nálgast hér.

Kort af framkvæmdasvæðinu.

Allt kapp verður lagt á að hagaðilar og íbúar á svæðinu verði fyrir sem minnstum óþægindum á framkvæmdatíma en álag fylgir því að vera nálægt framkvæmdasvæði.

Laugavegur við Hlemm

Mynd af svæðinu áður en framkvæmdir hófust.

Borgarlínan um Hlemm

Hlemmsvæðið hefur verið skipulagt sem miðborgartorg, svæði fyrir margvíslegar uppákomur og leik í öruggu umhverfi. Um er að ræða umfangsmikla framkvæmd Reykjavíkurborgar sem felur í sér endurgerð gatnamóta og göturýmis, nýtt torgsvæði og uppbyggingu Borgarlínu á svæðinu og uppsetningu tveggja Borgarlínustöðva á svæðinu. Áætlað er að þessar framkvæmdir hefjist á næsunni.

Framkvæmdirnar sem nú eru hafnar á Laugavegi eru tenging við Hlemmsvæðið og ná upp að Katrínartúni.  Borgarlínan er stórt langtímaverkefni og til að koma í veg fyrir of mikið rask á samgöngum verður verkið bútað niður þannig að ekki verður farið í framkvæmdir á löngum kafla í einu.

Ásýndarmynd Mandaworks af Hlemmtorgi en framkvæmdir hefjast þar á næstunni.