Öryggis­ráð­stafanir vegna framkvæmda í Fossvogi

Undirbúningur vegna framkvæmda við landfyllingar fyrir Fossvogsbrú stendur nú yfir Reykjavíkurmegin. Öryggisráðstafanir fela meðal annars í sér að sett hafa verið upp viðvörunar- og upplýsingaskilti, málaðar stígamerkingar og girðingar reistar til að tryggja öryggi vegfarenda og afmarka framkvæmdasvæðið.

Þvera þarf göngu- og hjólastíga á einum stað svo vinnutæki komist að en stígarnir verða aldrei lokaðir. Hjáleið var gerð á þessu svæði til draga úr hraða og auka umferðaröryggi og til að mæta vinnutækjum undir betra horni og þannig tryggja sjónlengdir. Öryggisráðstafanir voru meðal annars unnar í samráði við LHM, Landssamtök hjólreiðamanna.

Leitast er við að framkvæmdir valdi sem minnstum truflunum en til að tryggja góða miðlun upplýsinga um áhrif framkvæmdanna og eðli þeirra var opnuð sérstök vefsíða: Framkvæmdir fyrir Fossvogsbrú

Fossvogsbrú er hluti af fyrstu lotu Borgarlínunnar og fjármögnuð af Samgöngusáttmálanum.
Vegagerðin hefur umsjón með verkinu en það er verktakafyrirtækið Grafa og grjót sem annast framkvæmdir.

Betri samgöngur og samstarfsaðilar þakka vegfarendum á svæðinu fyrir skilning og tillitsemi.