Áfangaúttekt er lokið á gerð landfyllinga og sjóvarna fyrir Fossvogsbrú Reykjavíkurmegin og hefur verktakinn, Grafa og Grjót, þar með lokið þessum hluta verksins á undan áætlun. Svæðið var formlega afhent verktökum fyrir brúarsmíði í gær en Ístak og Per Aarsleff AS hófu framkvæmdir sínar á Kársnesi í apríl. Vinnu við að koma undirstöðum brúarinnar fyrir á landfyllingunni og á sjó miðar vel áfram.

Með áfangaúttektinni eru öll gæðagögn, svo sem mælingar, prófanir og innmælingargögn lögð fram. Vegagerðin, sem hafði umsjón með gerð landfyllinga og sjóvarna, hefur nú afhent svæðið til Betri samgangna ohf.

Fulltrúar frá Ístaki, Vegagerðinni, Norconsult (eftirlitsaðili), Betri samgangna og Verkefnastofu Borgarlínu á landfyllingunni Reykjavíkurmegin.
Framkvæmdir við gerð landfyllinga og sjóvarna fyrir Fossvogsbrú hófust á Kársnesi í janúar 2025 og samkvæmt áætlun átti verkinu ekki að ljúka fyrr en í nóvember á þessu ári. Grafa og Grjót hafa hins vegar einnig klárað gerð landfyllinga og sjóvarna Reykjavíkurmegin og svæðið nú tilbúið fyrir brúarsmíðina. Hluti af heildarverkinu er gerð landfyllingar út í Skerjafjörð fyrir Reykjavíkurborg og er verktakinn enn að vinna í þeim hluta.

Landfyllingin Reykjavíkurmegin er nú tilbúin fyrir brúarsmíði.
Betri samgöngur gerðu verksamning við Ístak og Per Aarsleff AS um smíði Fossvogsbrúar í nóvember síðastliðnum. Áætlað er að brúin Alda verði tilbúin til notkunar sumarið 2028.

Framkvæmdir Ístaks hafa staðið yfir á landfyllingunni á Kársnesi síðan í apríl. Unnið er við undirstöður brúarinnar á sjó og landi.
Fossvogsbrúin verður 270 metra löng og tengir suðurhluta höfuðborgarsvæðisins við miðborgina með nýjum hætti. Brúin er hluti af fyrstu lotu Borgarlínunnar og er ætluð Borgarlínuvögnum, strætisvögnum, gangandi og hjólandi vegfarendum, auk forgangsakstri lögreglu, sjúkraflutninga og slökkviliðs.

Nánar má lesa um framkvæmdir við Fossvogsbrú á vef Borgarlínunnar en þar eru vikulega settar inn upplýsingar um framgang og stöðu verksins.
https://www.borgarlinan.is/framkvaemdir/fossvogsbru