13. mars 2026

Framkvæmdir við HR og Nauthólsveg kynntar

Framkvæmdir vegna Borgarlínu hefjast við Nauthólsveg og HR í vor og í vikunni var haldinn kynningarfundur fyrir hagaðila á svæðinu. Farið var yfir helstu verkþætti og áætlanir ásamt aðgerðum til að tryggja flæði samgangna á svæðinu á þessu tímabili en gert er ráð fyrir verklokum á næsta ári. Bílaakreinar verða opnar í báðar áttir um Nauthólsveg allan framkvæmdatímann með hjáleiðum og sömuleiðis tengingar við hjóla- og göngustíga.

Betri samgöngur og Reykjavíkurborg stóðu að fundinum sem haldinn var í húsakynnum HR á miðvikudag.  Boð á hann fengu allir íbúar við Nauthólsveg, forsvarmenn fyrirtækja og nemendur og starfsfólk HR sem er stærsti vinnustaðurinn á svæðinu. Fulltrúar verkefnastofu Borgarlínu og Reykjavíkurborgar kynntu fyrirkomulag og áætlanir framkvæmda við Nauthólsveg sem snúa að endurgerð götunnar vegna tilkomu sérakreina fyrir Borgarlínu og nýrra stöðva.

 Á meðal helstu atriða: 

  • Ein bílaakrein í hvora átt opin allan framkvæmdatímann
  • Stígatengingar við stígana við Öskjuhlíð
  • Stoppistöðvar opnar allan framkvæmdatímann en færðar til
  • Akstur með þungaflutninga utan háannatíma
  • Möguleg tímabundin aukning bílastæða skoðuð
  • Reglulegir fundir framkvæmdaaðila
  • Samráð og samtal verkeigenda og verktaka á tímabili til að koma auga á samlegð og samnýtingu

Aðstæður fyrir breytingar:

Núverandi aðstæður þar sem HR Borgarlínustöð verður.

Borgarlínustöð eftir breytingar:

Ásýndarmynd af HR stöð eftir breytingar.

Á fundinum voru sýndar tölvugerðar ásýndarmynd af fyrirhuguðum breytingum á götusniðinu og útlit Borgarlínustöðva á svæðinu. Þær verða með þrepalausu og óheftu aðgengi fyrir öll.  Rýmri og þægilegri en nú tíðkast og fargjald greitt fyrirfram.

Núverandi aðstæður:

Núverandi aðstæður við Nauthólsveg.

Götusnið eftir breytingar:

Við endurgerð Nauthólsvegar helst fjöldi akreina fyrir bílaumferð óbreyttur, verður 1+1, en við bætast sérakreinar Borgarlínu sem eru miðjusettar. Þá verða göngu- og hjólastígar gerðir meðfram akreinum í báðar áttir.

Ásýndarmynd af Nauthólsvegi eftir breytingar. Sérakreinar Borgarlínu í miðju, óbreyttur fjöldi akreina fyrir bíla (1+1).

Á fundinum voru bornar upp ýmsar spurningar um aðgengi, bílastæðamál og önnur möguleg áhrif  framkvæmda. Lögð er áhersla á virkt og gott samtal og samráð við hagaðila til að lágmarka þau.

Kynningarfundur HR

Atli Björn Levy forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu hjá Betri samgöngum kynnti m.a. hver eru helstu einkenni Borgarlínu.

Kort af framkvæmdasvæðinu

Kort af Nauthólsvegi sem sýnir ferðaleiðir bíla, hjólandi og gangandi og framkvæmdasvæði í fyrsta áfanga.

Breytingar á deiliskipulagi

Breytingar voru gerðar á deiliskipulagi HR og nýtt deiliskipulag gert fyrir Borgarlínu um Nauthólsveg. Margvíslegt samráð hefur verið haft við hagaðila og hefur HR, stærsti vinnustaðurinn á svæðinu, fagnað tilkomu Borgarlínu og talið aukningu á umferð hjólandi falla vel að stefnu sinni. Sjá nánar í frétt á vef Betri samgangna.