20. apríl 2026

Framkvæmdir við brúarsmíði á Kársnesi

Undirbúningur fyrir smíði Fossvogsbrúar hefur staðið yfir síðan verktakarnir Ístak og Per Aarsleff AS tóku formlega við framkvæmdasvæðinu á Kársnesi í janúar 2026. Á næstu dögum hefst uppsetning á baujum í sjónum sem afmarka vinnusvæðið.  Framundan á næstu vikum eru boranir á landfyllingu og fyrsta sýnilega sjóvinnan. Opin leið verður fyrir sjófarendur á framkvæmdatíma sem sést á kortinu hér fyrir neðan.

 

Starfsemi verktaka vegna brúarsmíði er annars vegar á nýrri landfyllingu á norðanverðu Kársnesi og hins vegar við Kópavogshöfn. Þriðja skilgreinda vinnusvæðið verður á sjó þar sem brúin mun byggjast upp á næstu tveimur árum. Vinnu er ekki lokið við gerð landfyllinga og sjóvarna Reykjavíkurmegin en það verk klárast í sumar.

Skilgreint framkvæmdasvæði fyrir brúarsmíði: 

Kort af framkvæmdasvæði Fossvogsbrúar.

Opin leið verður fyrir sjófarendur á meðan framkvæmdum stendur. Það svæði er afmarkað með grænum baujum (grænn ferhyrningur á kortinu) nánast fyrir miðju þar sem brúin mun rísa.

Framundan eru boranir á landfyllingunni fyrir fyrsta burðarás (undirstöður) brúarinnar. Burðarásarnir verða sex talsins og eru sex staurar notaðir í hverjum ás. Þetta er fyrsti hluti af því sem síðar verða brúarstólpar Fossvogsbrúar. 

Fossvogsbrú

Tæki sem rekur staurana niður í jarðveginn.

Þegar borun er lokið fyrir fyrstu undirstöðuna verður prufustaurum slegið niður og undirbúningur hefst fyrir brúarás númer tvö. Guðjón Örn Björnsson, staðarstjóri Ístaks, segir að framkvæmdirnar verði brátt sýnilegar í sjó og að búast megi við að þeirra verði vart í nágrenni við vinnusvæðið. Mælitæki verða notuð til að mæla hávaða við borun.

Vinnusvæði við Kópavogshöfn:

Kópavogsbær veitti afnot af svæði við Kópavogshöfn þar sem vertakar hafa aðstöðu fyrir undirbúningsvinnu sem kallar á stór vinnutæki.  Þar eru brúarstaurarnir festir saman og til að ferja þá yfir á veglegan pramma er notaður stærsti færanlegi krani á Íslandi. Pramminn mun svo sigla með straurana yfir á framkvæmdasvæðið á landfyllingunni norðanmegin  á Kársnesi.

Kópavogshöfn

Einn stærsti færanlegi krani hér á landi er notaður í verkið.

Pramminn sem er notaður er til ferja staurana yfir á framkvæmdasvæðið á landfyllingunni.

Fossvogsbrú verður 270 metra löng og allt að 17 metra breið. Verkið er hluti af fyrstu lotu Borgarlínu og tengir saman vesturhluta Kópavogs og Reykjavík. Brúin er ætluð Borgarlínuvögnum, strætisvögnum, gangandi og hjólandi vegfarendum, auk forgangsakstri lögreglu, sjúkraflutninga og slökkviliðs.

 

Verkefnið er hluti af Samgöngusáttmálanum.