1. apríl 2026

Útboð á framkvæmdum og hönnun fyrir Borgarlínu

Framkvæmdir við Borgarlínu um Hlemm og á hluta Laugavegar að Katrínartúni hafa verið boðnar út og áætlað að vinna við þær hefjist í maí. Óhætt er að segja að nú í vor sé árangur undirbúnings síðustu ára fyrir Borgarlínuna loks að skila sér. Betri samgöngur hafa þegar auglýst nokkur útboð fyrir Borgarlínuna og önnur verða auglýst á næstu vikum. Hluti útboðs Reykjavíkurborgar fyrir Hlemmtorg fyrr í vikunni er gerð sérakreina fyrir Borgarlínu og uppsetning tveggja Borgarlínustöðva þar.

Borgarlínu útboðin sem um ræðir eru annars vegar fyrstu framkvæmdaútboðin á götuleggjum, þ.e.a.s. fyrstu framkvæmdaútboðin fyrir utan útboðið á Fossvogsbrú sem lauk með verksamningi í nóvember.  Framkvæmdir við brúarsmíðina sjálfa eru að hefjast og vinnu við landfyllingar lýkur í sumar.

Hins vegar eru útboð fyrir ýmsa efnisútvegun fyrir framkvæmdirnar, þ.e. götulýsingu, umferðarljós, kantsteina, tré og skýli á stöðvar. Í febrúar var einnig auglýst útboð fyrir rammasamning um eftirlit með gatnaframkvæmdum.

Í mars voru auglýst eftirfarandi útboð:

  • Útboð á for- og verkhönnun Borgarlínu um Hí svæðið, Skothúsveg og Fríkirkjuveg og Borgarlínu um Kársnes, þ.e. Bakkabraut og Borgarholtsbraut.
  • Innkaup á graníti fyrir kantsteina á stöðvum og millileggsteina milli hjóla- og göngustíga.
  • Framkvæmdir á Laugavegi frá Hlemmi að Ásholti.
  • Forval fyrir for- og verkhönnunarútboð fyrir Lotur 2-6.

Í apríl verða eftirfarandi útboð auglýst:

  • Framkvæmdir á Nauthólsvegi, um HR og á Laugavegi á milli Ásholts og Bolholts.
  • Innkaup á skýlum fyrir stöðvar Borgarlínu.
  • Innkaup fyrir götulýsingu.

Ásýndarmynd af Nauthólsvegi eftir breytingar. Sérakreinar Borgarlínu í miðju, óbreyttur fjöldi akreina fyrir bíla (1+1).

Í maí verða eftirfarandi útboð auglýst:

  • Framkvæmdir Borgarlínu um Nauthólsvík og Vesturvör í Kópavogi. Um er að ræða stutta leggi sem eru tengingar Borgarlínu og göngu- og hjólastíga við Fossvogsbrú.
  • Innkaup fyrir umferðarljós.
  • Fyrsti hluti útboðs fyrir rammasamning um innkaup á trjám fyrir göturými Borgarlínu.

Í júní er svo áætlað útboð fyrir framkvæmdir á Stórhöfða á efra svæði Ártúnshöfða og brúar sem mun tengja saman efra og neðra svæði Ártúnshöfða. Á brúnni verða sérakreinar Borgarlínu, akreinar fyrir bílaumferð, hjólastígar og göngustígar.

Kort af 1. lotu Borgarlínu: Ártúnshöfði – Hamraborg