Uppbygging innviða fyrir Borgarlínu við Nauthólsveg og HR. Verkið er hluti af fyrstu lotu Borgarlínu og felur í sér breytingar á götusniði Nauthólsvegar, Menntavegar og Menntasveigs ásamt gatnamótum og tengingum á svæðinu. Sérrými fyrir almenningssamgöngur verður komið fyrir í miðju götuþversniði, aðskilið frá akreinum fyrir almenna umferð með umferðareyjum. Þá verða gerðir hjóla- og göngustígar beggja vegna götunnar.
Núverandi hringtorgi á gatnamótum Nauthólsvegar og Menntavegar verður breytt í ljósastýrð gatnamót. Vestan Háskólans í Reykjavík verður byggð ný Borgarlínustöð. Ný aðkoma verður gerð að aðalinngangi HR og ný aðkomugata gerð að Landhelgisgæslunni.
Framkvæmdin er samstarfsverkefni Betri samgangna, Reykjavíkurborgar og Veitna.
Upplýsingum verður miðlað reglulega til hagaðila á framkvæmdasvæðinu og hægt er að hafa samband í tölvupósti á netföngin: borgarlinan@borgarlinan.is eða upplysingar@reykjavik.is
Framkvæmdatími
Ágúst 2026 - júlí 2028



Gildir frá 30.10.2026 - 01.05.2027
Aðgengi og bílastæði
Nauthólsvegur
Aðgengi og bílastæði

Áhersla er lögð á að lágmarka áhrif framkvæmda á umferð allra samgöngumáta. Gerð hefur verið áætlun um bráðabirgðavegi og stígtengingar á framkvæmdatíma, eins og sýnt er á yfirlitskorti. Ein bíla akrein í hvora átt verður ávallt opin. Stoppistöðvum Strætó verður haldið opnum allan framkvæmdatímann en þær verða færðar til eftir því sem nauðsyn krefur. Bílastæðum við HR mun fækka eitthvað á framkvæmdatímanum, misjafnlega mikið eftir verkáföngum.
Helstu verkþættir:
Öryggis- og umhverfismál
Betri samgöngur
Reykjavíkurborg
Veitur
Verktaki Grafa og Grjót
VerktakiMalbikunarstöðin Höfði
Borgarlínan er hluti af innviðauppbyggingu Samgöngusáttmálans á höfuðborgarsvæðinu.
Innviðir fyrir almenningssamgöngur eru 42% af fjárfestingum sáttmálans, 42% fara í uppbyggingu stofnvega, 13% í gerð göngu- og hjólastíga og 3% fara í umferðarstýringu, öryggi og flæði.
